UBER-SEXUAL

Stunt-rass Brads Pitts

27.11.2006 21:11:33 / Hamarinn

ég held að helvíti sé frosið

Sælar langt síðan ég var hérna síðast!! búinn að vera á sjó og ég er ekki að grennast að það er ekki normalt þetta veður við okkar blessaða sker ef það er ekki skítabræla er alveg skítakuldi í staðinn eða bara bæði í einu þetta er ekki normalt!!!!

ég er í fríi núna hjá ástinni minni henni Helgu bara ljúft að koma heim til hennar fórum í skírn í gær hjá Láru og Sveinbirni Helga var skínarvottur bara sætt að sjá hana þarna uppi með litlu dúlluni henni Heiðbjörtu Eydísi sem að mér finnst alveg heavy fallegt nafn og passar ekkert smá vel við þessu líka prinsessu:)

En annars fór ég og hitti strákana á föstudag heima hjá maritz og skemmtum við okkur alveg frábærlega en ég held að skúringar konan í blokkinni sé ekki alveg sátt við að ég skyldi missa flösku bjór í gólfið hjá henni!!!!

svo á morgun koma Lára og Sveinbjörn í mat hingað svo fórum við í bío saman hlakkar ekkert smá til

Lög dagsins eru: Mér finnst rigning góð og Singing in the rain

Seinna fólk


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 14:18:21 / Hamarinn

ST OLA

Kom til eyja í gærkvöldi loksinns fór með þessu líka snilldar skipi st ola svona tíu sinnum betri en herjólfur!;) Langar líka að lýsa undrunn minni á að þessar freðlur af skaganum skyldu verða valdir bestu stuðningsmenn ársinns er bara steikt sjö til átta pappakassar sem að heyrist ekki rassgat í skil þetta ekki!!!!!8|

En anywho er í eyjum og er að leita að plássi sem fyrst er orðinn spenntur fyrir að komast á sjó aftur!!!:lol:

einn undrandi kveður


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 21:25:49 / Hamarinn

BIKAR Á LAUGARDAG

Hitti RAUÐA LJÓNIÐ í vinnunni í dag drengur veit ekkert hvernig hann á að vera ennþá!!! hann var bara asnalegur þegar ég tók  mynd af honum en þegar að hann vissi að þetta var fyrir valsara þá vinkaði hann!!!:lol:Sendi semsagt félaga mínum þessa mynd í dag svona 20 sinnum og sagði að valsbaninn biði að heilsa:haha: fékk til baka að við KR-INGAR værum allir fífl og við höfðum eingann veginn átt þetta skilið8| En eins og ég sagði honum þá þarf að halda einbeitingu allan leikinn

Reyni að henda myndinni inn sem fyrst

KR VERÐUR BIKARMEISTARI 2006


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 21:37:59 / Hamarinn

KR AÐ EILÍFU!!!!!

Hvað erum við að tala um?? Ég gjörsamlega missti mig í dag þegar samstarfsmaður minn smellti einu kvikyndi inn þegar að það voru 2 sekundur eftir að leiknum og staðan orðin 2-2 og annað sætið er okkar Gummi Pé aka RAUÐA LJÓNIÐ er gjörsamlega að gera sig þessa dagana:lol: Og einnig vill ég óska vals mönnum til hamingju með þriðja sætið í deildinni:haha:

Spennufallið hjá manni var suddalegt eftir þennan leik mig langaði bara mest að fara að sofa á bílastæðinu á laugardagsvelli;) Svo sá ég einn skondinn atburð á leiðinni af vellinnum einhver stelpa er að rölta með vinkonu sinni á grensásveginum er eitthvað að missa sig og frussar tyggjóinu sínu útur sér stendur smá yfir því tekur það upp horfir á það og smellir því svo í trantinn á sér eins og ekkert hafi gerst!!!8|

Er þetta NORMALT????

Svo vil ég líka óska Óla og Ástu innilegga til hamingju með frumburðinn

Kvedds einn að springa úr hamingju

ps svo vil ég fá comment hérna fyrst ég er byrjaður aftur


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 18:29:17 / Hamarinn

Shit

Það er alltof langt síðan ég bloggaði síðast!!! Er búinn að gera helling í sumar en það sem stendur hæst uppúr er Búlgaría!!! Þvílík snilld sem að þetta land er maður getur ekki gert annað en að fara aftur þangað heavy fínt veður geðveikt flott strönd og allveg svaðalega ódýrt!!! Held að ég hafi ekki kynnst öðru eins bjór á nákvæmlega eggert!!

En mig langar mest að lýsa ánægju minni á gengi KR í boltanum í sumar eru að gera góða hluti á vellinum og við erum að fara á kostum í stúkunni fengum verðlaun hjá Landsbankanum fyrir að vera bestir í 7-12 sem að var snillllllld fengum happy gilmore ávísun!!!!!!

 http://www.krreykjavik.is/?kr=myndir&flokkur=14&mynd=140 linkur á mynd af okkur strákunum með verðlauninn!!(myndirnar tók Sigurvin Ólafsson leikmaður fh)

Bleddsaðir


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 16:40:27 / Hamarinn

Klukk Klukk í helvíti

ég var klukkaður af svenson

4 störf sem ég hef unnið um ævina

1 Sjómaður

2 Bakari

3 Lyftaramaður

4 tækjamaður á vertíð

4 Bíomyndir sem ég get horft á aftur og aftur

1. Black Hawk Down

2.Saving Private Ryan

3.Platoon

4.Top Gun

4 staðir sem ég hef búið á

1.Breiðholtið

2.grimsby(England)

3.vesturbærinn(101 RVK)

4.Grafarvogurinn

4 Sjónvarpsþættir sem mér líkar við

1.Freinds

2.Lost

3.Prison Break

4.Scrubs

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum

1.luxemborg

2.spánn(Salou,Mallorca)

3.Þýskaland

4.Frakkland

4 Bækur sem að ég les oft

1.Útkallsbækunar eins og þær leggja sig

2.Óskaslóðin

3.Buddy

4.Da Vinci Lykilinn

4 Staðir sem ég vildi Heldur  vera á núna

1.Highbury

2.New York

3.Ástralía

4.Áarhús

4 sem að ég skora á eru

1.Hommi og nammi(stymmi og tommi)

2.Byssan

3.Jójó sys

4.Bjössi selfoss tröll


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 18:31:04 / Hamarinn

Ding Ding Ding!!!!!!!

Langar að setja inn eina rudda tæklingu herna inn í viðbót

Shit Hvað þetta hlytur að vera vont!!!!!!!!:cry: Menn eiga ekki að beygja hnéð í þessa átt:!:

Kvedds einn sem verkjar í löppina


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 20:07:43 / Hamarinn

cult drasl!!!!!!!!

ég er verð að segja að þessi helgi var snilld skemmtilegt djamm um helgina fékk samt svita kast og varð flökurt þegar að ég sá brotið á Alan Smith og ekki var það betra þegar ég sá Totti brotið shiturinn titturinn ding ding ding !!! Kaldir út næstu mánuði

þetta er viðbjóður

 

Totti örugglega með smá verk í fætinum

 Svo er þetta fokking löppin á Alan smith þetta er vibbi!!!!!

Sjáiði Hvernig Fokking löppin á honum er að snúast!!!!8| Mig verkjar Sjálfan í löppina núna


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 22:19:32 / Hamarinn

Blahhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh!!!!!!!!!!

Lennti í skondnu atviki áðan var að fara í olís við gullinbrú og þegar að ég er að stíga útur bílnum þá byrjar polo sem er þarna á planinu að flauta og var ekkert að hætta!!! Strákurinn sem er að vinna hleypur að bílnum og opnar hurðina og þá hættir flautan haldiði ekki að kallinn hafi ekki dottið út og hausinn beint á flautuna hahaha:lol: Hvet líka alla til að stoppa í olís á gullinbrú það er verið að taka búðina í gegn og þeir eru með aðstöðu í einhverjum skúr þetta er svona sveitastemming en það besta við þetta er að skúrinn hallar svo að maður hefur á tilfinningunni að maður sé að detta á hliðina allan tímann sem maður er þarna inni:lol:

Jæja Bond James Bond 007 kveður


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 10:09:14 / Hamarinn

er ekki allt í lagi hérna???

ég eins og allir Íslendingar er búinn að fylgjast með handboltanum og ég veit ekki hvort að þetta sé svartsýni í mér en mér hefur alltaf fundist við verða geðveik þegar kemur að landsliðinu sama hvort það er í handbolta eða fótbolta einn ágætis úrslit og við verðum Heimsmeistarar ekki misskilja mig ég styð mitt land en tókum landsliðið í fótbolta sem dæmi það mæta kanski 7500 manns á venjulegann leik og af þessum 7500 eru svona sirka 7000 af þessu liði svona týpur sem að er alveg sama um leikinn mæta til að láta sjá sig og sjá aðra ekki að gera sig!!!8| hvað eru margir sem að fylgja handbolta landsliðinu út???Til að við náum einhverjum góðum árangri þarf að koma á hópferðum á þessi mót og leiki skapa stemmingu í kringum þetta taka bretana til fyrirmyndar

kvedds ein raunsær


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 23:15:49 / Hamarinn

Shiturinn titturinn

Sælar ég er án efa einhver slakasti bloggari sem uppi hefur verið!!!! samt hellingur búinn að skerast hjá manni sumt bara gaman og annað algjör viðbjóður eins og brotið í spoilernum á bílnum hjá mér:klikk: ég í einhverju pirrings kasti í þorlákshöfn braut spoilerinn þegar að ég var að loka skottinu og ekki nóg með það þá skemmdi ég líka fokking læsinguna svo það er ekki hægt að fara í skottið nema að taka sætin afturí niður hversu fokking pirraður getur maður orðið ég bara spyr???8| en annars af betri fréttum þá kom stymmi bró heim frá dk og það var gaman að hitta hann aftur(ekki sést síðan 9 águst í fyrra) og svo komu drengs í heimsókn í gærkvöldi til mín og við drukkum öl og tókum texas hold´em sem er einhver mesta snilld í heimi og ég held að óli hafi átt moment kvöldins eftir að ómar(a.k.a eyepoker)hafði hellt bjór á tomma stráks röltir inni eldhús og er eitthvað að fara að tala um hvað Þetta sé nú búið að ganga áfallalaust fyrir sig þá missir hann bjórflöskuna sína í gólfið og glerbrott út um allt!!!!:D seinnheppnasti maður sem upp hefur verið ekki að ástæðu lausu að nickið hann er slysó!!!!! verð að koma kveðja í bili stráks út

hammerinn kveður


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 22:22:35 / Hamarinn

Var að finnast

Shit sorry er búinn að vera týndur en var að komast í leitirnar!!!nei en án djóks er ég búinn að að vera fokking latur ekki nennt að bulla eitthvað hérna!

Langar til að óska Herði orra til hamingju með Loserpool klassa spil best að sleppa því að klára leikinn!!!!!!!!!:D er kominn á nýjann stað í vinnunni frekar nett að að vera orðinn wad-ari flottur hópur sem að er að vinna þar!!! hellingur búinn að vara að gerast upp á síðkastið afmæli hjá stráknum og gamla kallinum stymmi bró var að koma heim frá dk og sagði hann mér góða sögu síðann um helgina á djamminu á jóhönnu systir minni!!!!

Hún byrjar á því að þau fara á nonna að éta um nóttina(alltaf klassík)hún byrjar á að missa bitann sinn í jörðina og hún ekki alveg með allt kveikt sökum drykkju ætlar bara að pikka hann upp eins og ekkert hafi gerst!!!þau drulla sér svo í leigubílaröðina þar sem að svona sirka 150 manns standa í röð en nei nei hún systir mín röltir bara fram fyrir alla og kallar á stymma og hörð komið strakar!! þeir voru nú ekki alveg á því að skipa fram fyrir alla en nei kemur ekki punktur frá helvíti frá systir minni komiði strákar þetta er allt í þetta er cadilac!!!:D

Helgin var góð hjá mér fór í geimboð á laugardaginn hjá eimskip í digranesskóla sæmilega flott party það flott að yfirhnakkar íslands gátu látið sjá sig það(Heiðar austmann og Ásgeir Kolbeins)

er hættur í bili kominn með heddara af öllum þessum skrifum heyrumst eftir mánuð

Hamerinn úti


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 22:16:28 / Hamarinn

Sokkana Hingað

Sælar ákvað að koma með eina sögu um einn félaga minn fyrst ég er dáinn í höfði!!!

Þessi ágæti drengur heitir ómar og ef þú reytir hann til reiði pottar hann í augað á þér!!!!!

þessi gerist í fyrra á leiðinni á akureyri og á akureyri við lögðum af stað 4 félagarnir og þegar við komum í borgarnes er ákveðið að kikja í mjólkurbúðina og birgja sig upp fyrir helgina svo fattar gimpið hann ómar að pabbi hans er fluttur þangað og við ákveðum að kikja á naglann hann Áka sem er ekki frásögu færandi nema að það byrjaði á mismæli hja ómari sem að hætti ekki alla fokking helgina strákar þið farið upp með brekkuna ekki upp hana heldur upp með hana!!!

við hlógum smá af þessu hans næsta komment drap mig samt við erum að koma að sjoppu á leiðinni til ak þá heyrist í honum sallírólegum afturí strákar ég er að míga á mig og ég er líka að fá fokking blóðtappa í löppina:D

þegar við komum á akureyri var farið í golf og svo kikt á hótelið og græjað fyrir kæjann um kvöldið þar sem að ómar var líka alveg með það á hreinnu að allt áfengi væri að klárast á akureyri því að drengurinn drakk eins og fokking kanturinn á góðum degi!! eftir tveggja tíma sull kemur bróðir hans ómars hann Ingvar(a.k.aByssan) Strákar það er eitthvað að ómari við kikjum inná klósett stendur ekki gimpið við klósett skálina með ennið í vegginn og er að taka power napp þarna!!!!!! þegar þetta gerðist er ákveðið að fara með hann heim og önnur eins bíomynd hefur ekki sést lengi hann byrjar eitthvað að bulla meðan hann labbaði eins og krabbi á hlið og kom ein setning sem að klikkar sjaldan john terry auðvelt bara að stígann út!!!!! svo þegar hann er kominn inná herbergi verður að hjálpa honum að koma sér í rúmið og þegar óli var að taka hann úr sokkunum heyrist í ómari sokkana hingað og bendir undir handakrikann á sér og vildi ekki sofna fyrr en sokkarnir væru komnir þangað:lol:

Sorry marizt einhver verður að líða fyrir mína stíflu og þetta var það sem mér datt fyrst í hug

Kv Hammerinn


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 20:15:46 / Hamarinn

Ég held bara að þetta sé búið!!!!

Hvað segið þið gott ég er ekki alveg að fatta hvað er að gerast með þetta vankaða líffæri sem að ég kalla heila!! hann bara fokking tæmist þegar að ég er fyrir framan tölvua!!! alveg blanco

Ég held bara að ég verði að fara setja puttana í innstungu til að stuða heilann í gang.:lol:

kv Sá hugmyndarsnauði


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 00:35:17 / Hamarinn

sorry

Ég verð nú bara að viðurkenna að ég er búinn að vera heftur í höfði uppá síðkastið hérna var að rífa hausinn úr rassgatinu á mér og ætla að fara að blogga af krafti hérna!!!!!

Strákurinn er að byrja að hreyfa sig og ég skal koma mér í form það gengur ekki lengur að vera eins og versta kelling smá hreyfing og þá þarf maður súrefni:D Maður verður  kominn í killer form í sumar fyrir ferðina til Búlgaríu en þar verður maður í ágúst að sleikja sólina á golden sands! ekki slæmt það:o Ég er líka búinn að setja inn eitthvað af myndum og það verða komnar fleiri á næstu dögum ég lofa.

Ég verð í eyjum um jólin og ég get ekki beðið með að komast þangað í smá frí bara að borða og sofa(kanski að lyfta aðeins glasi) en ég er að spá í að keyara inn fleiri myndum núna

Endilega að kikja á svampinn í tenglum hja mer

Kveðja einn heftur í höfði


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
snilld
Sportið
djammið